Nýjast á Local Suðurnes

Fella niður vistunargjöld leikskólabarna

Stjórnendur Grindavíkurbæjar og stjórnendur leikskóla sveitarfélagsins hafa ákveðið að fella vistunargjöld niður fyrir þá foreldra sem hafa tök á að hafa börn sín heima á meðan hertar samkomutakmarkanir vegna kórónuveirufaraldursins eru í gildi.

Hafi foreldrar eða forráðamenn tök á að hafa börn sín heima í stað þess að þau séu í leikskóla þá er óskað eftir því að leikskólanum sé tilkynnt um það sem fyrst.
 
Vistunargjöld í leikskóla munu verða felld niður þann tíma sem foreldrar eru með börn sín heima.

Fólk er hvatt til að fylgjast vel með heimasíðu bæjarins, sem og Karellen og tölvupósti vegna nýrra tilkynninga, segir á vef sveitarfélagsins.