Féll út úr hópferðabifreið og slasaðist á fæti
Kona varð fyrir því óhappi á dögunum að falla út úr hópferðabifreið og slasast á fæti og karlmaður féll í tröppum og slasaðist á höfði. Ekki er nánar greint frá meiðslum fólksins í tilkynningu.
Auk þessa kemur fram í tilkynningu frá lögreglu að bifreið hafi verið ekið á steinvegg í Keflavík með þeim afleiðingum að öryggisloftpúðar sprungu út. Ökumaðurinn slapp án meiðsla.