Nýjast á Local Suðurnes

Félagsþjónusta Reykjanesbæjar við hælisleitendur: “Ef ykkur líkar þetta ekki, þá getið þið farið til Afganistan”

Útlendingastofnun og kærunefnd útlendingamála hafa úrskurðað að feðgin, sem sóttu um hæli hér á landi og hafa komið sér fyrir í Reykjanesbæ, skuli send úr landi. Þau sækja nú nauðavörn fyrir dómstólum.

Verði feðginin send úr landi munu þau verða send til Þýskalands, en þaðan eru Afganir nær undantekningalaust sendir til Afganistan, hvort sem þeir bjuggu þar eða í Íran áður.

Feðginunum líður vel hér, betur en annarstaðar, en fyrst og fremst líður þeim sem þau séu örugg á Íslandi, segja þau í viðtali sem birt var á heimasíðu óformlega samstöðuhópsins Ekki fleiri brottvísanir. Í viðtalinu kemur einnig fram að dóttirin, sem er á þrettánda ári sjái um allt sem þarf til þess að komast gegnum hversdaginn í íslenska hæliskerfinu – Auk þess að sjá um innkaup, þrif og þessháttar, þar sem faðirinn er slasaður á fæti.

Í viðtalinu, sem er að finna hér fyrir neðan kemur einnig fram að feðginin hafi ókað eftir aðstoð félagsþjónustu Reykjanesbæjar við úrlausn sinna mála, en þar hafið þau komið að tómum kofanum og einu svörin sem þau hafi fengið hafi verið “Ef ykkur líkar þetta ekki, þá getið þið farið til Afganistan.”

Uppfært 19.7 kl 19:53:

Hjálparsamtökin Solaris sett í gang undirskriftasöfnun þeim til stuðnings. Vel á fjórða þúsund manns hafa tekið þátt í undirskriftasöfnuninni, sem afhent verður Útlendingastofnun á næstu dögum.