Fékk viðurkenningu frá Reykjanesbæ og fálkaorðuna sama daginn - Local Sudurnes
Bæjarráð Reykjanesbæjar ákvað á fundi sínum, þann 19. maí s.l. að útnefna Karen J. Sturlaugsson, tónlistarmann, sem næsta bæjarlistamann Reykjanesbæjar 2022 – 2026. Karen var veitt viðurkenningin við hátíðardagskrá 17. júní í skrúðgarðinum í Keflavík í dag. Svo skemmtilega vildi til að í dag hlaut Karen einnig riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu fyrir framlag sitt til tónlistaruppeldis ungmenna. Karen er fædd og upp alin í nágrenni Boston í Bandaríkjunum en á ættir að rekja til Íslands. Hún fluttist til Íslands með eiginmanni sínum Birni Sturlaugssyni að loknu háskólanámi í trompetleik og hljómsveitastjórn og stærðfræði. Hún hóf kennslu við Tónlistarskólann í Keflavík árið 1988 og var skólastjóri 1998-1999. Hún hefur starfað sem aðstoðarskólastjóri Tónlistarskóla Reykjanesbæjar síðan 1999. Karen hefur unnið við tónlistarkennslu og hljómsveitarstjórn í gegnum árin og byrjaði 16 ára að stjórna lúðrasveit. Fljótlega eftir að Karen hóf kennslu við Tónlistarskólann í Keflavík árið 1988 tók hún við lúðrasveit skólans og stofnaði léttsveit skólans sem í dag gengur undir nafninu Stórsveit Suðurnesja. Árið 2012 stofnaði Karen Bjöllukór Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og nú stýrir hún annarri og þriðju kynslóð bjöllukórsins. Bjöllukórinn hefur tekið þátt í jólatónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands s.l. 10 ár og er orðinn ómissandi hlutur þeirra tónleika. Kórinn var einnig fenginn til að [...]