sudurnes.net
Fékk tundurskeyti í trollið - Local Sudurnes
Séraðgerða og sprengjueyðingarsveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út síðdegis í dag eftir að togari fékk tundurskeyti í veiðarfæri skipsins. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar óskaði eftir skipið færi þegar í stað til hafnar í Sandgerði og sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar voru sendir á staðinn, segir í tilkynningu. Þegar togarinn var kominn til hafnar var skipið rýmt og sprengjusérfræðingarnir undirbjuggu flutning tundurskeytisins frá borði með sérstökum flothólkum og að lokum var skeytið híft í sjóinn og dregið með slöngubát séraðgerðasveitar hálfan annan kílómetra frá höfninni. Á morgun verður það sprengt af sprengjusérfræðingum Landhelgisgæslunnar. Talið er að um 300 kíló af sprengiefni séu í skeytinu og því líklegt að íbúar í Sandgerði finni fyrir sprengingunni. Afar sjaldgæft er að svo öflug tundurskeyti komi um borð í íslensk fiskiskip. Landhelgisgæslan hefur kallað út viðvörun á rás 16 þar sem bátar eru beðnir um að halda 2 sjómílna fjarlægð og halda sig frá innsiglingunni í Sandgerðishöfn. Uppfært klukkan 21:46 Séraðgerða og sprengjueyðingarsveit Landhelgisgæslunnar hefur komið tundurskeytinu sem kom í veiðarfæri togara úti fyrir Sandgerði fyrir á um 10 metra dýpi, hálfan annan kílómetra frá Sandgerðishöfn þar sem því verður eytt. Talið er að um sprengjuhleðslu úr þýsku tundurskeyti frá seinni heimsstyrjöld sé að ræða. Vegna sjólags og myrkurs hefur verið [...]