Fara fram á fangelsisrefsingu í máli Geirmundar – Reyndi að varpa ábyrgð á undirmenn
Farið er fram á tveggja ára fangelsisrefsingu í máli Geirmundar Kristinssonar, fyrrverandi sparisjóðsstjóra Sparisjóðsins í Keflavík, sem ákærður var fyrir umboðssvik. Þetta kom fram í málflutningi Helga Magnúsar Gunnarssonar vararíkissaksóknara, í Hæstarétti í morgun.
Frá þessu er greint á vef mbl.is, en þar kemur fram að ekki væri hægt, að mati saksóknara, að mæla með mildun refsingar á þeim forsendum að Geirmundur hefði gert grein fyrir brotum sínum og gengist við þeim, enda hefði hann reynt að varpa allri ábyrgð á undirmenn sína.
Í ákæru sagði að Geirmundur hefði stefnt fé sparisjóðsins í verulega hættu þegar hann fór út fyrir heimildir til lánveitinga með því að veita einkahlutafélaginu Duggi 100 milljóna króna yfirdráttarlán 16. júní 2008.