Fann 250.000 kall og skilaði á lögreglustöðina - Local Sudurnes
Rétt í þessu kom heiðvirður borgari með umslag, fullt af peningum, á lögreglustöðina. Umslagið fann þessi borgari á gangstétt hér í bæ. Um verulega fjárhæð var að ræða og leitaði lögreglan á Suðurnesjum til Facebookvina sinna eftir aðstoð við að hafa uppi á eigandanum. Eigandinn þarf að sjálfsögðu að sanna eignarhald með því að segja okkur hversu mikið sé í umslaginu. Enn ein rós í hnappagat borgara í Reykjanesbæ, segir á Facebook-síðu Lögreglustjórans á Suðurnesjum. Ekki löngu eftir að tilkynningin birtist hafði eigandi peninganna gefið sig fram við lögreglu. Viðkomandi hafði verið að taka mikið af peningum út úr banka og misst umslagið á götuna. Meira frá SuðurnesjumSamfélagssjóður Isavia styrkir fjölda góðgerðarmálaRáða fólk til starfa við gosstöðvarNjarðvíkingar Brassa sig uppLæknir grunaður um röð alvarlegra mistakaEigandi Kosmos & Kaos ósáttur við vinnubrögð ReykjanesbæjarGrindavík semur við nokkra leikmennMest lesnu pistlar ársins: Óþægilegu hlutar fjármálanna og Beruð kynfæriMiklu magni lyfja stolið úr apóteki – Enn brotist inn í báta í NjarðvíkurhöfnMark Tryggva Guðmundssonar gegn Leikni F. fer í sögubækurnarDacoda selur hugbúnaðarlausn – Draga sig út úr þróun bílaleigukerfa