sudurnes.net
Faldi sig og bílinn fyrir lögreglu eftir árekstur - Local Sudurnes
Ökumaður sem ók í veg fyrir annan á mikilli ferð í Keflavík í vikunni, og olli þar með árekstri, stakk af og faldi sig og bifreið sína á verkstæði. Lögreglan á Suðurnesjum hafði upp á kauða og viðurkenndi hann að hafa stungið af og verið réttindalaus í þokkabót. Annar ökumaður missti stjórn á bifreið sinni í hálku og endaði hún á ljósastaur og í blómabeði í Njarðvík. Þá hafnaði bifreið utan vegar eftir að ökumaðurinn hafði mætt bifreið sem ekið var eftir Norðurljósavegi miðjum með háu ljósin á. Hann missti stjórn á bifreiðinni þegar hann sveigði henni til hliðar til að forða árekstri. Hún var mikið skemmd en ökumaðurinn slapp án meiðsla. Fleiri óhöpp urðu í umferðinni í vikunni en engin alvarleg slys á fólki. Meira frá SuðurnesjumBlindaðist af sól og ók á kennslubifreiðFimm handteknir eftir árekstur í SandgerðiEldur í bifreið á GrindavíkurvegiBifreið olli talsverðum usla og skemmdum í BónusAllt seldist upp og tæki biluðu á opnunarhelginniMannlaus bifreið fauk á aðra bifreiðFlutningabíll valt á ReykjanesbrautLögregla kölluð til eftir árekstur – Báðir ökumenn töldu sig vera í réttiÞriggja bíla árekstur í Reykjanesbæ og bílvelta á GrindavíkurvegiLúmsk hálka á Suðurnesjum – Fimm umferðaróhöpp í morgun