sudurnes.net
Faldi fíkniefni milli fóta sér - Grunuð um dreifingu og sölu - Local Sudurnes
Lögreglan á Suðurnesjum haldlagði amfetamín og kannabisefni í íbúðarhúsnæði í umdæminu á dögunum. Efnunum hafði verið komið fyrir víðs vegar um íbúðina. Karlmaður og kona voru þar innan dyra þegar lögreglu bar að garði og reyndi maðurinn að sturta fíkniefnum niður í klósettið þegar hann varð lögreglumannanna var. Konan reyndi að kasta efnum út um glugga en þegar það tókst ekki reyndi hún að fela þau milli fóta sér. Fólkið var handtekið og flutt á lögreglustöð. Maðurinn játaði eign sína á megninu af þeim efnum sem fundust. Grunur leikur á að um dreifingu og sölu fíkniefna hafi verið að ræða. Meira frá SuðurnesjumNokkrir teknir með fíkniefni – Fóru misjafnar leiðir við að fela efninSkóla- og menningarmál verða í Sandgerði og fjármálin og stjórnsýslan í GarðiSpinkick í Ísland Got Talent á sunnudag – Líkaðu við þau á Facebook!Allir komnir með nýjar tunnur og flokkun hefst af fullri alvöruBitin af Husky hundi og biðlar til hundaeigenda að vera ekki með hunda sína lausaVíðismenn taka þátt í áskorun Dizzygoals – Myndband!Skötumessan: Gefa skólabörnum 12.500 máltíðir á næstu fimm árumUnglingar úr Garði og Sandgerði tóku þátt í Landsmóti SamfésTorfæruhjól fældi hest og knapi féll af bakiKlaustursspjallið: “Helvíti sæt stelpa – Hún gæti fengið eitthvað í [...]