sudurnes.net
Fáir yfirmenn Reykjanesbæjar greiða útsvar til sveitarfélagsins - Local Sudurnes
Einungis þrír af sjö helstu yfirmönnum Reykjanesbæjar halda lögheimili í sveitarféaginu og greiða því sitt útsvar þangað, þeirra á meðal er bæjarstjórinn Kjartan Már Kjartansson, en auk hans hafa framkvæmdastjóri Umhverfis- og skipulagssviðs og framkvæmdastjóri Velferðarsviðs lögheimili í sveitarfélaginu. Töluverðar breytingar hafa verið gerðar á yfirstjórn Reykjanesbæjar frá síðustu kosningum og hafa meðal annars verið ráðnir til starfa þrír nýjir sviðsstjórar sem ekki halda lögheimili í Reykjanesbæ og greiða því ekki útsvar til þessa skuldsettasta sveitarfélags landsins. Nýráðinn fræðslustjóri Reykjanesbæjar býr í Hafnarfirði, hafnarstjóri býr í Grindavík og sviðssjóri stjórnsýslusviðs í Sveitarfélaginu Garði auk þess sem sem nýráðinn mannauðsstjóri sem kemur til starfa á haustmánuðum kemur af höfuðborgarsvæðinu. Bæjarstjórinn hefur áhyggjur af útsvarsgreiðslum Kjartan Már Kjartansson Bæjarstóri Reykjanesbæjar, Kjartan Már Kjartansson gerði útsvarsgreiðslur bæjarbúa að umræðuefni í nýlegum pistli sem birtur var á heimasíðu Reykjanesbæjar fyrir skömmu, þar tók hann meðal annars dæmi um útsvarsgreiðslur manns miðað við 500.000 króna mánaðarlaun: “Dæmi: Maður sem er með kr. 500.000.- í mánaðarlaun greiðir kr. 72.600.- í útsvar pr. mánuð eða kr. 871.200.- á ári (72.600*12). Heildar útsvarsálagning hans í álagningarskránni væri því kr. 871.200.- Til að reikna þetta afturábak þarf að deila með 12 í kr. 871.200.-, sem gera 72.600.- og aftur með 14,52% [...]