Nýjast á Local Suðurnes

Fækkar í einangrun og sóttkví á Suðurnesjum

Alls eru 47 einstaklingar smitaðir af kórónuveirunni og í einangrun á Suðurnesjasvæðinu, en þeim hefur fækkað jafnt og þétt undanfarna daga en 60 manns voru í einangrun þann 20. október síðastliðinn, þegar sudurnes.net birti síðast frétt um málið.

Nýjustu tölur má sjá á vef landlæknis og Almannavarna, covid.is, en þar kemur einnig fram að 119 einstklingar séu í sóttkví á svæðinu, en þeim hefur fækkað verulega undanfarið, en hátt í 500 einstaklingar voru í sóttkví á Suðurnesjum þegar mest lét í þriðju bylgju faraldursins sem nú gengur yfir.