Nýjast á Local Suðurnes

Fækkar hratt í einangrun og sóttkví

Alls eru 24 einstaklingar smitaðir af kórónuveirunni og í einangrun á Suðurnesjasvæðinu, en þeim hefur fækkað jafnt og þétt undanfarna daga en yfir 60 manns voru í einangrun þegar mest lét í þriðju bylgju faraldursins.

Nýjustu tölur má sjá á vef landlæknis og Almannavarna, covid.is, en þar kemur einnig fram að 67 einstklingar séu í sóttkví á svæðinu, en þeim hefur fækkað verulega undanfarið, en hátt í 500 einstaklingar voru í sóttkví á Suðurnesjum þegar mest lét í þessari þriðju bylgju.