sudurnes.net
Fá ekki að breyta verslunarhúsnæði í íbúðir - Local Sudurnes
Eigendur fasteignar við Hafnargötu í Reykjanesbæ óskuðu eftir heimild umhverfis-og skipulagsráðs sveitarfélagsins til að breyta verslunarrými húsnæðis við götuna í íbúð. Erindinu var hafnað meðal annars vegna gildandi deiliskipulags. Hafnargata hefur átt undir högg að sækja sem verslunargata en unnið er að uppbyggingu og mikilvægt er að framboð verði á hentugu verslunarrými við götuna. Deiliskipulag liggur fyrir vegna Hafnargötu 12 og Hafnargötu 22-28 en stutt er í að framkvæmdir hefjist. Við endurskoðun aðalskipulags var sett inn svohljóðandi ákvæði: Lögð er áhersla á að viðhalda lifandi götuhliðum með innsýn í verslunar- og þjónusturými. Ekki er heimilt að breyta atvinnuhúsnæði á jarðhæð í íbúðarhúsnæði. Erindi hafnað, segir í svari ráðsins. Meira frá SuðurnesjumLeikskólinn Tjarnarsel í bókaútgáfuSbarro valið til veitingasölu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í sumarKólnandi veður framundan – Snjór í kortunumBarnakór Grindavíkur 1977-1981 kemur saman á ný í MenningarvikunniÞað verður sungið og dansað á þrettándagleði í VogumVogabúar taka á móti Friðarhlaupurum á morgunÞroskahjálp og Sandgerðisbær semja um rekstur bygginga fyrir fólk með fötlunFjárlagafrumvarp 2018: Ekki lögð áhersla á framkvæmdir á ReykjanesbrautBreytingum hafnað í annað sinnÁhersla lögð á þéttingu byggðar í endurskoðuðu aðalskipulagi