sudurnes.net
Erlendur undir áhrifum áfengis á of miklum hraða - Fær 150.000 króna sekt - Local Sudurnes
Ökumaður sem ók yfir hámarkshraða á Reykjanesbrautinni aðfararnótt föstudagsins reyndist hafa fleira á samviskunni heldur en hraðaksturinn. Bifreið hans mældist á 121 km. hraða þar sem hámarkshraði er 90 km. á klukkustund og þegar lögreglumenn á Suðurnesjum ræddu við hann lagði af honum áfengislykt. Hann var handtekinn og færður á lögreglustöð, grunaður um ölvunarakstur. Þarna var á ferðinni erlendur ferðamaður og nemur sektargreiðsla við brotum af því tagi sem hann varð uppvís að 150.000 krónum. Þrír ökumenn til viðbótar voru staðnir að hraðakstri, allir á Reykjanesbrautinni. Sá sem hraðast ók mældist á 144 km. hraða og hafði ekki náð átján ára aldri. Meira frá SuðurnesjumNíu kærðir fyrir hraðakstur og einn fyrir ölvunaraksturUngir ökumenn á hraðferð sviptir ökuréttindumFimm teknir fyrir of hraðan akstur – Einn á rúmlega tvöföldum hámarkshraðaNítján teknir á of miklum hraðaFær 250.000 króna sekt fyrir hraðaksturHandtekinn með fíkniefni falin í sígarettupakkaHandtekinn vegna gruns um ölvun við akstur eftir ferð í vínbúðErlendur á fleygiferð – Mikið um hraðakstur á brautinni17 ára ökumaður ók hraðast allra – Sviptur og fær 130.000 króna sektSautján ára á fleygiferð