Nýjast á Local Suðurnes

Erlendur þarf að tilkynna sig á lögreglustöð næstu átta vikurnar

Erlendur karlmaður var í vikunni settur í tilkynningaskyldu eftir að lögreglan á Suðurnesjum hafði af honum afskipti sem leiddu til þess að upp komst um að hann dvaldi hér á landi og stundaði atvinnu á fölsuðum skilríkjum.

Maðurinn framvísaði við lögreglu grísku kennivottorði og ökuskírteini sem hvoru tveggja reyndust vera grunnfalsað. Hann var handtekinn og færður á lögreglustöð. Þar neitaði hann að gefa upp raunverulegt nafn eða að framvísa gildum skilríkjum. Auk skjalafalsins er honum meðal annars gefið að sök brot á lögum um atvinnuréttindi útlendinga og dvöl í landinu án dvalarleyfis.

Hann skal tilkynna sig á lögreglustöð næstu átta vikurnar meðan mál hans er til meðferðar.