sudurnes.net
Erlendur gat ekki greitt kvartmilljón á staðnum - Erfitt að ná í ferðamenn sem skulda sektir - Local Sudurnes
Lögreglan á Suðurnesjum hefur kært ellefu ökumenn fyrir of hraðan akstur á undanförnum dögum. Sá sem hraðast ók mældist á 164 km hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Þarna var á ferðinni erlendur ferðamaður sem gat ekki greitt sektina á staðnum. Sektarupphæð vegna brots af þessu tagi nemur 240 þúsund krónum. Lögreglunni hefur undanfarin ár reynst erfitt að innheimta sektir erlendra ferðamanna þar sem hún hefur oft á tíðum ónægar upplýsingar um aðsetur. Aðeins 45% sekta sem sendar eru erlendum ferðamönnum eru greiddar. Þá voru allmargir ökumenn sektaðir fyrir að tala í síma án handfrjáls búnaðar meðan á akstri stóð og skráningarnúmer voru fjarlægð af fáeinum bifreiðum sem voru óskoðaðar eða ótryggðar í umferðinni. Meira frá SuðurnesjumSautján ára á fleygiferðFékk hraðasekt upp á 240 þúsund krónurReykjanesbær getur ekki tryggt meira af ódýru leiguhúsnæðiFullur á fleygiferð fær háa sektRökuðu inn milljónum króna á nokkrum dögum – “Margborgar sig að fara að umferðarreglum”Mældist á 149 kílómetra hraða – Svipting og 210 þúsund króna sektTekinn á 134 km/h á ReykjnesbrautFjórtán teknir á of miklum hraðaFimmtán kærðir fyrir of hraðan aksturGripnir við að tala í síma án handfrjáls búnaðar