sudurnes.net
Erlendir aðdáendur norðurljósa ollu árekstri á Grindavíkurvegi - Local Sudurnes
Umferðaróhapp varð á Grindavíkurvegi við Seltjörn í gærkvöld þegar tveir erlendir ferðamenn voru þar á ferðinni til að skoða norðurljósin. Ökumaðurinn ákvað að breyta um akstursstefnu og tók u – beygju á veginum. Ökumaður bifreiðar sem ekið var í sömu átt sá fyrrnefndu bifreiðina ekki fyrr en of seint og hafnaði bifreið hans í hlið hinnar. Mikil þoka og myrkur voru á vettvangi þegar óhappið varð. Flytja þurfti ökumann annarrar bifreiðarinnar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til skoðunar en ferðamennirnir erlendu sluppu ómeiddir. Þá var bifreið ekið á skilti á Sandgerðisvegi. Bifreiðin var óökufær eftir óhappið en engin slys urðu á fólki. Meira frá SuðurnesjumÖkumaður bifhjóls féll í götunaÞriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut – Ökumennirnir sluppu allir ómeiddirFluttur á bráðamóttöku Landspítala eftir mótorhjólaslysFlutningabíll valt á ReykjanesbrautGrunaður um ölvunarakstur valt ofan í skurðKeflavíkurflugvelli lokað eftir að flugvél rann út af flugbrautMætti rúllandi dekki á ReykjanesbrautEkið á fimm ára barnFellihýsi losnaði aftan úr bifreið og rann á aðraBílvelta á Reykjanesbraut