Nýjast á Local Suðurnes

Enn ekki verið svarað hvort æskilegt sé að byggja flugvöll í Hvassahrauni

Bæjarstjórn Reykjanesbæjar skorar á stjórnvöld að sjá til þess að fulltrúar Suðurnesja hafi aðkomu að þeim starfshópum og nefndum sem fjalla um flugmál, en fulltrúar allra flokka í bæjarstjórn lögðu fram sameiginlega bókun varðandi flugvöll í Hvassahrauni á fundi sínum í dag.

Í bókuninni, sem finna má í heild sinni hér fyrir neðan, kemur fram að þrátt fyrir að fjögur ár séu liðin frá því að niðurstaða nefndar um flugvallakosti á höfuðborgarsvæðinu var birt, hefur þeirri spurningu enn ekki verið svarað hvort æskilegt sé að byggja flugvöll á þessu svæði, í miðju óröskuðu hrauni sem jafnframt liggur ofan á og nærri vatnsverndarsvæði.

Nú þegar umræða um mögulegan flugvöll í Hvassahrauni er enn á ný farin af stað, telur bæjarstjórn Reykjanesbæjar rétt að vekja athygli á nokkrum atriðum varðandi Hvassahraun sem flugvallarstæði.

Frá því flugvöllur í Hvassahrauni var nefndur sem ákjósanlegur valkostur fyrir staðsetningu innanlandsflugs í niðurstöðum nefndar um flugvallarkosti á höfuðborgarsvæðinu (Rögnunefndar) í júní 2015, hefur umræða um slíkan völl skotið upp kollinum með mislöngu millibili. Þrátt fyrir að nú séu fjögur ár liðin frá því að niðurstaða nefndarinnar var birt, hefur þeirri spurningu enn ekki verið svarað hvort æskilegt sé að byggja flugvöll á þessu svæði, í miðju óröskuðu hrauni sem jafnframt liggur ofan á og nærri vatnsverndarsvæði okkar Reyknesinga.
Bæjarstjórn vill beina til Svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja að hún taki afstöðu til þess hvort og hvaða afleiðingar slíkur flugvöllur myndi hafa fyrir svæðið.

Jafnframt vill bæjarstjórn skora á stjórnvöld að sjá til þess að fulltrúar Suðurnesja hafi aðkomu að þeim starfshópum og nefndum sem fjalla um flugmál þar sem flugsamgöngur ráða miklu um stöðu þessa svæðis og afkomu þeirra sem þar búa.

Það hefði eflt og einfaldað alla umræðu, hefði verið horft til þessara hagsmuna í vinnu nefndar um flugvallarkosti á sínum tíma.“