Nýjast á Local Suðurnes

Enn ekið á kyrrstæða bifreið Leoncie – Fjórða skiptið á nokkrum mánuðum

Leoncie er ósátt við bæjaryfirvöld, lögreglu og þá sem aka ítrekað á bifreið hennar

Ekið var á kyrrstæða bifreið söngkonunnar Leoncie, þar sem bifreiðin stóð framan við hús hennar við Greniteg. Söngkonan segist ítrekað verða vitni, bæði að ógætilegum akstri og akstri gegn einstefnu í götunni.

Að sögn söngkonunnar góðkunnu, er þetta í fjórða skiptið sem ekið er utan í bifreið hennar á nokkrum mánuðum, en Suðurnes.net greindi frá svipuðum málum á síðasta ári. Söngkonan hefur ítrekað kvartað við lögreglu og bæjaryfirvöld vegna þessara mála undanfarin ár og segir þá aðila lítinn áhuga hafa á að fylgja málunum eftir.

“Það er EINSTEFNU skilti  sem reykjanesbærs óvitar settu upp í limgerði nágranna mins á horninu af greniteigi 2 við vesturgötu. Áður fyrr var skiltið á bílaplani Samkaup strax. Við skiljum ekki hvers vegna þetta áberandi skilti var fært yfir götuna.

Dags daglega  eru folk í óréttu ráði að koma fljugandi á móti umferðinni á móti okkur þegar við erum að keyra inn frá vesturgötu inn í Greniteigin.” Sagði söngkonan við Suðurnes.net þegar fjallað var um málið á síðasta ári.

Guðlaugur Helgi Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Umhverfis- og skiplagssviðs Reyjanesbæjar sagði í spjalli við blaðamann, þegar fjallað var um máið á síðasta ári að ekki stæði til að fara í aðgerðir við þessar götur, en Reykjanesbær sendi bréf til allra íbúa við Greniteig og mæltist til að fólk æki gætilega.

“Við sendum bréf á alla í götunni um að aka gætilega, þá stórlega dró úr hraðakstri. Þetta er einstefnugata með hraðahindrunum. Ekki miki meira sem við getum gert.” Sagði Guðlaugur. “Það væri þá helst að loka götunni í miðjunni og gera tvo botnlanga – Og það stendur ekki til.” Sagði Guðlaugur.