sudurnes.net
Enginn ráðherra úr Suðurkjördæmi - Páll Magnússon studdi ekki tillögu Bjarna - Local Sudurnes
Enginn ráðherra í nýrri ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar kemur úr Suðurkjördæmi, en Sjálfstæðisflokkurinn fékk fjóra þingmenn kjörna í kjördæminu og Viðreisn einn. Páll Magnússon, oddviti Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi, segist á Facebook-síðu sinni ekki hafa stutt tillögu Bjarna Benediktssonar, formanns flokksins, um ráðherra flokksins. Páll segir að hún hafi falið í sér lítilsvirðingu gagnvart Suðurkjördæmi þar sem flokkurinn hafi unnið sinn stærsta sigur í kosningunum. Páll segir einnig að þessi ráðherraskipan hafi gengið í veigamiklum atriðum gegn því lýðræðislega umboði sem þingmenn Sjálfstæðisflokksins hefðu áunnið sér í prófkjörum og síðan kosningum í haust. Á Facebook-síðu Ásmundar Friðrikssonar kemur einnig fram gagnrýni á ráðherravalið, en í svörum á þeim vettvangi segist Ásmundur ætla að bíða og sjá hvernig skipan í nefndir og forsæti í þeim komi til með að líta út. Meira frá SuðurnesjumÁrangur í húsnæðismálumMiklu magni lyfja stolið úr apóteki – Enn brotist inn í báta í NjarðvíkurhöfnÞúsund farþegar hafa nýtt sér beint flug til AkureyrarLögregla stöðvaði baðferð við ReykjanesvirkjunÓli Geir græddi milljónir á Eurovision og NelsonMarcelina sigraði hæfileikakeppni SamsuðDeiliskipulagstillaga vegna Hafnargötu 12 send til endanlegrar afgreiðsluReynismenn nældu í þrjú fyrstu stigin með sigri á Vængjum JúpitersFimm eiga möguleika á 100.000 króna styrk til að skemmta öðrumSuðurnesjaliðin í basli [...]