Engin úr Íslandsmeistaraliðinu í úrvalsliðinu
Enginn leikmaður úr Íslandsmeistaraliði Njarðvíkur er í úrvalsliði Subway-deildar kvenna í körfuknattleik, en liðið var tilkynnt í dag.
Þá hlaut þjálfari liðsins Rúnar Erlingsson ekki titillinn þjálfari ársins þrátt fyrir ótrúlegan árangur, en ekki var búist við miklu af Njarðvíkurstúlkum, sem komu upp úr 1. deildinni fyrir tímabilið.
Subway deild kvenna | ||
Úrvalslið | Dagbjört Dögg Karlsdóttir | Valur |
Úrvalslið | Eva Margrét Kristjánsdóttir | Haukar |
Úrvalslið | Helena Sverrisdóttir | Haukar |
Úrvalslið | Dagný Lísa Davíðsdóttir | Fjölnir |
Úrvalslið | Isabella Ósk Sigurðardóttir | Breiðablik |
Leikmaður ársins | Dagný Lísa Davíðsdóttir | Fjölnir |
Erlendur leikmaður ársins | Aliyah Daija Mazyck | Fjölnir |
Þjálfari ársins | Bjarni Magnússon | Haukar |
Ungi leikmaður ársins | Tinna Guðrún Alexandersdóttir | Haukar |