Nýjast á Local Suðurnes

Endaði út í hrauni undir áhrifum fíkniefna og á stolinni bifreið

Lögreglan á Suðurnesjum hefur á síðustu dögum haft afskipti af allmörgum einstaklingum vegna fíkniefnamála. Karlmaður sem færður var á lögreglustöð vegna gruns um fíkniefnasölu reyndist vera með fíkniefni innan klæða. Í vörslum sínum var hann með hnúajárn, lyfseðilsskyld lyf sem ekki hafði verið ávísað á hann svo og myljara.

Í húsleit sem gerð var í umdæminu fannst amfetamín og kókaín. Tveir karlmenn voru handteknir og viðurkenndu þeir eign sína á efnunum.

Ökumaður sem ók bifreið sinni út af í Hvassahrauni reyndist vera með fíkniefni í vörslum sínum og var að auki grunaður um fíkniefnaakstur, sviptur ökuréttindum og á stolinni bifreið.

Fimm ökumenn til viðbótar voru teknir úr umferð vegna gruns um fíkniefnaakstur. Tveir þeirra voru án ökuréttinda.