sudurnes.net
Japanskir embættismenn fræddust um nýtingu jarðvarma í Grindavík - Local Sudurnes
Þann 23. desember síðastliðinn, kom fríður flokkur Japana í heimsókn á bæjarskrifstofur Grindavíkurbæjar. Í hópnum voru embættismenn og forstjórar frá borginni Ibusuki en hún er þekkt fyrir svarta sanda og heit jarðböð. Tilgangur heimsóknarinnar var einmitt að fræðast um nýtingu jarðvarma á hagkvæman og umhverfisvænan hátt sem og um uppbyggingu ferðamannastaða samhliða en það starf og sú uppbyggingin sem hefur verið unnin á þessu sviði í Grindavík og í Auðlindagarði HS orku hefur vakið athygli á heimsvísu, segir á heimsíðu Grindavíkur. Róbert Ragnarsson bæjarstjóri tók á móti hópnum og fór yfir og svaraði fjölmörgum spurningum og að lokum skiptust hann og Hiroshi Sato, aðstoðarbæjarstjóri Ibusuki, á gjöfum. Meira frá SuðurnesjumAldraðir í Reykjanesbæ fá ekki frekari afslátt af fasteignagjöldumGunnar áfram með NjarðvíkSamherji býður á fundFengu fjarvistir vegna þátttöku á þingi UMFÍ um ungt fólk og lýðræðiHS Orka óskar eftir leyfi fyrir tilraunaborunum í EldvörpumÓsk um stækkun hótels hafnað eftir andmæli nágrannaForkynna aðalskipulagsbreytingar vegna miðbæjarReykjanesbær boðar til íbúafundar vegna tvöföldunar ReykjanesbrautarUnited Airlines flýgur til ÍslandsEinn kjörstaður í Reykjanesbæ