sudurnes.net
Elsta hópferðafyrirtæki landsins keyrt í þrot rétt áður en skaðabótakrafa var tekin fyrir - Local Sudurnes
ABK ehf., sem áður hét SBK ehf. hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness í lok ágúst. Fyrirtækið átti að baki 88 ára farsæla sögu og var elsta hópferðafyrirtæki landsins. Tímasetning gjaldþrotsins vekur athygli, en til stóð að taka fyrir skaðabótakröfu Sambands Sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS) á hendur félaginu vegna riftunar á rekstri strætóleiðar 55. Björn Ragnarsson, forstjóri Kynnisferða, sagði í samtali við Suðurnes.net í lok nóvember að fyrirtækið myndi halda starfsstöð sinni í Grófinni áfram og að meirihluti starfsfólks SBK héldi vinnunni, þrátt fyrir breytingarnar, enda væru umsvif fyrirtækisins mikil á Reykjanesinu meðal annars í akstri flugrútu auk þess sem skipulagðar ferðir fyrirtækisins í Bláa lónið væru vinsælar. Þá sagði Björn á þeim tíma að vörumerkið SBK yrði notað áfram þrátt fyrir að það yrði fært yfir til Kynnisferða. Meira frá SuðurnesjumHefja útgáfu á ný – Reykjanes verður SuðurnesjablaðiðFélag í eigu Blaá lónsins stefnir á að byggja á formúlubrautarlóðNafn stúlkunnar sem lést í bílslysi á Grindavíkurvegi – Bænastund verður haldin í kvöldBjóða Reykjavíkurstrætó út til eins ársGrindavík í toppbaráttu – Lögðu KR í Vesturbænum í kvöldÁfram skert starfsemi hjá ReykjanesbæSafnað fyrir fjölskyldu MareksEigendur Bláa lónsins þátttakendur í ylstrandarverkefni við UrriðavatnÓlafur Ólafsson semur við Grindvíkinga á nýMargt áhugavert í boði fyrir [...]