Ellefu á hraðferð og tveir á fíkniefnum
Ellefu ökumenn hafa á síðustu dögum verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum. Þar af voru átta sem óku of hratt í nágrenni við skóla, þar sem hámarkshraði er alla jafna 30 km. á klukkustund. Á Reykjanesbraut mældist sá sem hraðast ók á 136 km. hraða þar sem hámarkshraði er 90 km. á klukkustund.
Þá voru tveir ökumenn til viðbótar færðir á lögreglustöð þar sem sýnatökur staðfestu neyslu á fíkniefnum.