Eldur kviknaði á Ásbrú
Eldur kom upp í tómri skemmu á Ásbrú rétt fyrir klukkan fimm í nótt. Samkvæmt heimildum sudurnes.net kom slökkviliðið á Keflavíkurflugvelli fyrst á staðinn og hóf sökkvistörf, Brunavarnir Suðurnesja mættu svo skömmu síðar á vettvang. Búið er að slökkva eldinn en slökkviliðið er enn á vettvangi.
Skemman sem um ræðir hýsti þvottahús bandaríska hersins á árum áður en er ekki í notkun um þessar mundir.