Nýjast á Local Suðurnes

Eldur í fjölbýlishúsi í Reykjanesbæ – Átta fluttir á sjúkrahús

Átta manns voru fluttir á sjúkra­hús til meðhöndl­un­ar vegna bruna­sára og hugs­an­legr­ar reyk­eitr­un­ar, eftir að eldur komu upp í fjölbýlishúsi við Hafnargötu í Reykjanesbæ í nótt.

Tilkynnt var um eldinn rétt fyr­ir klukk­an þrjú í nótt, en samkvæmt frétt mbl.is hafði kviknað í þvotta­húsi og stiga­gangi húss­ins. Að sögn lög­regl­unn­ar á Suður­nesj­um var húsið rýmt og farið var með átta manns á sjúkra­hús til meðhöndl­un­ar vegna bruna­sára og hugs­an­legr­ar reyk­eitr­un­ar.

Um 30 manns búa í húsinu og var Rauði kross­inn kallaður út og farið var með hinn hluta hóps­ins í fjölda­hjálp­ar­stöðina á Iðuvöll­um. Elds­upp­tök eru ókunn.