Ekki verður lokið við tvöföldun Reykjanesbrautar á næstu árum
Ekki verður lokið við að tvöfalda Reykjanesbraut milli Hafnarfjarðar og Hvassahrauns né frá Fitjum að Flugstöð Leifs Eiríkssonar næstu tvö árin hið minnsta, samkvæmt samgönguáætlun 2015-2018 sem lögð hefur verið fram á Alþingi. Einu framkvæmdirnar við Reykjanesbraut samkvæmt áætluninni eru þær að byggð verða mislæg gatnamót á Reykjanesbraut við Krýsuvíkurveg í Hafnarfirði.
Vonir standa þó til þess að mögulegt verði að ljúka framkvæmdum við undirgöng fyrir gangandi vegfarendur með tengingu Ásbrúar við þjónustusvæði við Fitjar á þessu ári, en hugmyndir þess efnis voru kynntar fyrir Umhverfis- og skipulagsráði Reykjanesbæjar á fundi þess á dögunum.