sudurnes.net
Ekki enn samið við flugvallarstarfsmenn - Aðgerðir gætu haft mikil áhrif á starfsemi KEF - Local Sudurnes
Ekki hefur enn samist um kjör starfsmanna Félags flugvallarstarfsmanna (FFR) , en samningar hafa verið lausir síðan í október á síðasta ári. Líklegt er að gripið verði til aðgerða á næsu dögum sem gætu haft áhrif á starfsemi á flugvellinum. Samkvæmt heimildum Suðurnes.net var samþykkt að grípa til aðgerða á fundi FFR í kvöld, en samkvæmt þeim heimildum yrði yfirvinnustopp á meðal þeirra aðgerða sem gripið yrði til í upphafi. Slíkt stopp myndi hafa mikil áhrif á starfsemi vallarins, því á meðal þeirra sem eru félagsmenn í FFR eru flugvallarstarfsmenn, starfsfólk flugþjónustu s.s. slökkvilið og björgunarfólk ásamt starfsfólki sem sinnir snjóruðningi og halkuvörnum. Þá eru flugöryggisverðir, iðnaðarmenn og skrifstofufólk félagar í FFR sem og starfsfólk sem sinnir farþegaflutningum innan vallarsvæðisins. Meira frá SuðurnesjumBjóða eldri borgurum afslátt af bílastæðagjaldi við flugstöðinaAtkvæðagreiðsla um yfirvinnubann – Myndi hafa mikil áhrif á starfsemi KEFMiklu magni lyfja stolið úr apóteki – Enn brotist inn í báta í NjarðvíkurhöfnSamið um rekstur heilsugæslu í ReykjanesbæKór Keflavíkurkirkju og Söngfjelagið bjóða á tónleikaFjárveitingar staðið í stað og óhentugur tækjakostur til snjómokstursVilja funda vegna flóttamanna – Engin sveitarfélög sýnt áhuga á að sinna þessu verkefniMugison í Hljómahöll – Takmarkað magn miðaLeikskólinn Laut í Grindavík fékk Grænfána í þriðja sinnSamþykktu [...]