Nýjast á Local Suðurnes

Ekkert vesen á KEF – Náðu að manna nær allar stöður

Ekki er búist við neinum töfum á Keflavíkurflugvelli yfir sumarmánuðina vegna manneklu, en vel hefur gengið að manna allar stöður á vellinum að sögn Guðjóns Helgasonar, upplýsingafulltrúa Isavia.

Töluvert hefur verið um tafir á flugi undanfarið og má að mestu rekja það til vandræða með að fá starfsfólk á flugvelli erlendis.

„Það gekk afar vel að ráða fólk til starfa á Keflavíkurflugvelli í sumar. Okkur tókst að ráða í um 97 prósent stöðugilda,“ segir Guðjón og bætir við: „Á álagstímum er auðvitað mikil umferð um völlinn eins og hefur verið. Við höfum nú, eins og undangengin sumur, hvatt farþega til að mæta snemma eða svona um þremur tímum fyrir brottför.“ Sagði Guðjón í samtali við Fréttablaðið.