sudurnes.net
Einn vinsælasti veitingastaður Suðurnesja til sölu - Local Sudurnes
Veitingastaðurinn Vitinn hefur verið auglýstur til sölu. Vitinn er rúmlega 35 ára gamalt fjölskyldufyrirtæki og einn vinsælasti veitingastaðurinn á Suðurnesjum. Vitinn er staðsettur í Sandgerði á Reykjanesi í miðjum Unesco Geopark, segir í sölulýsingu. Staðurinn er í 7 mín aksturfjarlægð frá Keflavíkurflugvelli og frá honum er um 35 mín akstur á höfuðborgarsvæðið. Þá er landfræðileg lega staðarins sögð einstök þar sem hægt er að sinna sérstaklega vel gestum sem eru að koma eða fara í flug og hefur þetta gjörbreyst á síðustu árum þar sem boðið hefur verið upp á miðnæturflug. Margir gestir vilja enda dvölina í kvöldverði á Vitanum og síðustu sumur hafa gestir þurft frá að hverfa vegna þess að staðurinn er yfirbókaður. Staðnum hefur verið vel við haldið í gegnum tíðina, öll gólf er t.d. lökkuð og vernduð einu sinni á ári og innréttingar hafa verið endurnýjaðar eftir þörfum og hagkvæmi hverju sinni. Meira frá SuðurnesjumÞéttskipuð dagskrá á haustfundi European Geoparks NetworkÞrjú hundruð æfa á KEFAlþjóðleg æfing sprengjusérfræðinga á SuðurnesjumGjöld fyrir dagvistun og síðdegishressingu hækka mest milli ára hjá ReykjanesbæAlþjóðleg vottun færir aukin tækifæriElsta verktakafyrirtæki landsins vill byggja tugi íbúða í ReykjanesbæKanna hvort auka þurfi hreyfingu barna í grunnskólumFöstudagsÁrni er þakklátur Illuga JökulssyniBókakonfekt Bókasafnsins í kvöld – [...]