Einn ökumaður með kjötexi og annar undir áhrifum fíkniefna á ótryggðum bíl
Lögreglan á Suðurnesjum hefur verið dugleg við að stöðva og handtaka ökumenn á undanförnum misserum vegna aksturs undir áhrifum fíkniefna. Einn ökumannanna, sem sýnatökur staðfestu að hefði neytt amfetamíns og kannabisefna var með kjötexi og hnúajárn milli sætanna í bifreið sinni, sem var ótryggð.
Annar sem ók undir áhrifum fíkniefna var með meint amfetamín í bifreið sinni og farþegar í tveim bifreiðum til viðbótar framvísuðu kannabisefnum. Enn einn ökumaðurinn sem reyndist hafa neytt amfetamíns og kannabisefna ók ótryggðri bifreið.