Eiga í samskiptum við FBI vegna rannsóknar á sprengjuhótun - Local Sudurnes
Rannsókn stendur enn yfir á atviki sem kom upp á Keflavíkurflugvelli þegar fraktflugvél á vegum UPS á leið frá Þýskalandi til Bandaríkjanna lenti á flugvellinum vegna sprengjuhótunar stendur enn yfir. Rannsóknner í höndum tæknideildar lögreglu, sem er í samskiptum við FBI í Bandaríkjunum vegna málsins, samkvæmt því sem lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir í samtali við mbl.is, sem fjallar um málið. Engin sprengja fannst við leit í vélinni, en þar fannst aftur á móti pakki með flugeldum, eftirlíkingu af skotvopnum og flaska með óþekktum vökva. Allt hlutir sem ekki eiga að vera um borð í flugvélum. „Rannsóknin stendur yfir og hún er í höndum tæknideildar lögreglu. Síðan erum við í samskiptum í FBI og veitum þeim upplýsingar ef þess þarf,“ segir lögreglustjórinn um stöðu rannsóknarinnar. Meira frá SuðurnesjumMiklu magni lyfja stolið úr apóteki – Enn brotist inn í báta í NjarðvíkurhöfnMikill áhugi á Græna iðngarðinum í HelguvíkPáll Valur náði ekki endurkjöri – “Vonbrigði að ná ekki markmiðum sínum”Gerðu þitt eigið majónes – Einfalt og fljótlegtFarþegar á Keflavíkurflugvelli fá smáskilaboðVona að meirihlutinn vinni áfram í tekjuöflun eða samningum um skuldir bæjarinsÓvissa um stuðning ríkisins við uppbyggingu í HelguvíkStórkostleg bæting hjá nemendum í Reykjanesbæ í PISA-könnunDrónar fundust á KeflavíkurflugvelliNauðsynlegt að rífa hluta Hótel [...]