Eftirför lögreglu endaði á flugstöðvarbyggingunni – “Atburðurinn mjög alvarlegur”
Maður var handtekinn í komusal Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar um klukkan 18:30 í kvöld, en hann hafði ekið glæfralega á Reykjanesbrautinni, klesst bílinn, kýlt lögreglumann, þvingað kvenkyns ökumann úr bíl hennar með valdi og stungið af.
Lögregla veitti manninum eftirför, en ökuferðin endaði þegar hann klessti bílinn á komusal flugstöðvarinnar. Lögregla hefur ekki tjáð sig um hvort maðurinn hafi verið í annarlegu ástandi, en hann verður yfirheyrður á morgun.
Vitni að atburðinum í komusal flugstöðvarinnar segir í samtali við Suðurnes.net að maðurinn hafi sýnt af sér ógnandi hegðun þegar lögregla handtók hann í komusalnum og að mikil geðshræring hafi gripið um sig á flugvellinum þegar maðurinn kom inn í komusal flugstöðvarinnar, en þar hafi hann meðal annars hótað fólki.
Lögregla hefur ekki viljað tjá sig um atvikið, en lítur málið alvarlegum augum og segir í Facebook-færslu að málið sé í rannsókn.