sudurnes.net
Efnishyggja – þægindi eða sýndarmennska - Local Sudurnes
Fjármál okkar snúast að mestu um að hjálpa okkur að nálgast veraldleg lífsgæði. Við kaupum vörur og þjónustu með peningum. Þegar við breytum fjármálunum okkar þá þurfum við að endurskoða viðhorf okkar til efnislegra lífsgæða. Eru þau raunveruleg þægindi í okkar líf eða eru þau þarfa sýndarmennska? Haukur Hilmarsson – Fjármálaráðgjafi Þegar við endurskoðum dagleg útgjöld okkar til að hagræða fjármálum okkar þá þurfum við að spyrja okkur hvernig við veljum okkar efnislegu lífsgæði. Eru þau raunveruleg eins og húsnæði, bíll, farsími og föt eða eru þau sýndargæði? Gætum við upplifað sambærileg lífsgæði og þægindi með minna húsnæði? Kæmumst við líka frá A til B á ódýrari bíl? Er hægt að hringja úr ódýrari farsímum og mega fötin vera seinni tíma tískuföt úr outlet verslun? Mörg okkar falla í þá gryfju að halda uppi sömu hefðum og sömu viðhorfum þrátt fyrir að tekjur okkar hafi lækkað. Við „reynum“ að halda sama status með því að eyða í sömu lífsgæði og við gerðum áður. Mörg okkar husga að þetta sé tímabundið ástand, t.d. vegna barnaeigna, skyndilegs atvinnuleysis, eða vegna þess að við förum í nám. Mörg okkar halda áfram sömu hegðun án þess að hugsa út í það og elta bara [...]