Nýjast á Local Suðurnes

Efla eftirlit með hunda- og kattahaldi

Grindavíkurbær hefur fengið til starfa hunda- og kattaeftirlitsmann sem sinnir eftirliti hér á svæðinu, í stað þess að kalla þurfi út eftirlitsmann frá Keflavík í hvert sinn. Hallur Gunnarsson mun sinna þessu eftirliti og hægt er að hringja í hann í síma 821-5304 ef fólk verður vart við hunda sem ganga lausir. Einnig mun eftirlitsmaðurinn sinna eftirliti með skráningu katta, en alla ketti ber að skrá og örmerkja.

Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja hefur yfirumsjón með leyfisveitingum og eftirliti vegna dýrahalds á Suðurnesjum. Óskráðir kettir og hundar sem ganga lausir eru færðir til þeirra til geymslu. Grindavíkurbær bendir fólki á að hafa samband við Heilbrigðiseftirlitið ef dýra er saknað.

Samþykkt um hundahald á Suðurnesjum

Samþykkt um kattahald á Suðurnesjum