Nýjast á Local Suðurnes

Ef ég væri ríkur

Það er algeng draumsýn að miklar tekjur eða stór ávinningur geri okkur rík og hamingjusöm. En góð innkoma er ekki allur sannleikurinn. Ríkidæmi okkar mælist í hve mikið við eigum og virði þessara eigna.

haukur hilmarsson fjarmal

Haukur Hilmarsson

Þegar við ráðstöfum ekki hluta tekna okkar til að byggja upp varasjóði og byggja upp eignasafn þá búum við til ákveðið, en oft ósýnilegt, óöryggi í fjármálum. Spenna og álag sem smitar út frá sér í daglegt líf og líklegt er að við festumst í hættulegri venju til að líða betur – við lifum hærra með tilheyrandi auknum kostnaði.

Ef við viljum verða ríkari þá þurfum við að horfa á hve mikið við höldum eftir. Hve mikið spörum við eða ráðstöfum skynsamlega til að auka tekjur í stað þess að standa í stað eða stofna til skulda.

Hamingjan
Hamingjan mælist ekki í magni eigna eins og ríkidæmi okkar. Ef við viljum auka hamingjuna þá skiptir máli í hvað við eyðum peningunum okkar.

Þegar við söfnum miklum eignum til þess eins að eiga þær gæti að fært okkur vanlíðan í stað hamingju. Við upplifum vissulega einhverja þægindatilfinningu við að eiga eða eignast hluti, en í vissum tilfellum getum við fengið aðra og meira gefandi upplifun ef við nýtum það sem við eigum til þess að lifa í stað þess að liggja á eigum okkar.

Síendurteknar áhyggjur og hrakfarir Jóakims Aðalandar gætu kennt okkur einmitt það að þótt þú eigir hálfan heiminn þá verðir þú ekki endilega hamingjusamari. Jóakim er oftar en ekki á nálum yfir að aðrir eignist það sem hann ýmist á nú þegar eða langar til að eiga. Ripp, Rapp og Rupp eru hins vegar dæmi um einstaklinga sem virðast njóta þess að fara með þegar Jóakim ferðast um heim allan í græðgi sinni.

Setjum peningunum markmið
Þegar við setjum okkur markmið um hvert peningar okkar eiga að fara þá er skynsamlegt að dreifa honum á marga sjóði. Aðalsjóðurinn er auðvitað fastar greiðslur um mánaðarmót og svo daglegt líf