Drengur sem reynt var að smygla til landsins enn í umsjá yfirvalda
Gæsluvarðhald yfir serbneskum karlmanni sem grunaður er um að hafa ætlað að smygla unglingspilti hingað til lands í síðasta mánuði hefur verið framlengt til 4. október nk. Drengurinn er enn í umsjón barnaverndaryfirvalda.
Ólafur Helgi Kjartansson, lögreglustjóri á Suðurnesjum segir málið enn í rannsókn og er það litið mjög alvarlegum augum. Mbl.is hefur eftir Ólafi að verið að að afla upplýsinga um fjölskylduhagi piltsins.