Dráttur á endurnýjun flugskýla fyrir kafbátaleitarvélar - Local Sudurnes
Óvíst er hvernær ráðist verður í framkvæmdir á Keflavíkurflugvelli, vegna komu P-8 kafbátaleitarflugvéla bandaríska hersins til landsins, þar sem ekki er enn búið að samþykkja frumvarp um fjárframlög til varnarmála á Bandaríkjaþingi. Nýtt fjárhagsár Bandaríska ríkisins hófst þann 1. október síðastliðinn og var gert ráð fyrir að verkefni á vegum hersins, á Keflavíkurflugvelli, hæfust formlega eftir þann dag, af því hefur þó ekki orðið þar sem frumvarpið hefur ekki verið samþykkt. Í svari Utanríkisráðuneytisins við fyrirspurn Suðurnes.net, segir að gert sé ráð fyrir því að verkefnið komist á koppinn, en nákvæm tímasetning liggur ekki fyrir. Framlög til varnarmála eru bundin bráðabirgðarheimildum sem endurnýja þarf í apríl næstkomandi og því er ekki gert ráð fyrir að ráðist verði í framkvæmdir fyrir þann tíma. Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna gerir ráð fyrir að kostnaður við breytingar á flugskýlum á Keflavíkurflugvelli, vegna komu P-8 flugvéla til landsins, muni nema tæplega þremur milljörðum króna. Þar af er gert er ráð fyrir að um 650 milljónir króna fari í að koma upp nauðsynlegri hreinsiaðstöðu og um 200 milljónir í skipulags- og hönnunarvinnu. Meira frá SuðurnesjumDráttur á milljarðaframkvæmdum Bandaríkjahers á KeflavíkurflugvelliÞungfært innanbæjar – Hvetja ökumenn á illa búnum bílum til að vera ekki á ferðinniRöskun á söfnun úrgangs frá heimilumVinnuflokkum HS Veitna leyft að fara til Grindavíkur í birtinguBæjarfulltrúar [...]