Nýjast á Local Suðurnes

Dottandi ökumaður ók upp á umferðareyju og utan í umferðarskilti

Myndin tengist fréttinni ekki beint

Nokkuð var um umferðaróhöpp í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni en engin meiri háttar slys á fólki. Ökumaður sem var á ferð á Reykjanesbraut við Bónus dottaði undir stýri  og vaknaði upp við að hann var að aka upp á umferðareyju. Hann reyndi að koma bifreið sinni á rétta braut en ók þá utan í umferðarskilti. Bifreiðin var fjarlægð af vettvangi með dráttarbifreið.

Þá varð nokkuð harður árekstur á Njarðarbraut þegar bifreið var ekið aftan á aðra. Ökumaður síðarnefndu bifreiðarinnarvar fluttur með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.