Nýjast á Local Suðurnes

DJÄSS-tríóið heldur tónleika í Reykjanesbæ

DJÄSS heldur áfram tónleikaferðalagi sínu um landið og nú er röðin komin að Reykjanesbæ, – tónleikar í Bíósalnum í Duus-safnahúsum fimmtudaginn 19.maí kl.20.00 en þessi tónleikaröð trósíns endar síðan á Jazz Baltica hátíðinni í Þýskalandi þann 25.júní.

DJÄSS hefur starfað frá árinu 2010, fyrstu 10 árin undir nafninu Hot Eskimos, en breyttu nafninu í DJÄSS fyrir tveimur árum.

Tríóið hefur gefið út 3 plötur og er fyrsta platan þeirra „Songs from the top of the
world“ sem kom út 2011 og inniheldur íslensk rokk-,punk- og dægurlög í þeirra útsetningum, orðin ein söluhæsta íslenska instrumental jazzplata sem komið hefur út hér á landi. JR Music gaf hana svo út á vinyl fyrir nokkru og er hún ásamt öðrum plötum tríósins vinsæl á steymisveitum víða um heim. Þeirra þriðja plata, sem einfaldlega ber nafnið DJÄSS, kom út í
fyrra og fyrir hana fékk Karl Olgeirsson, píanóleikari, tilnefningu til íslensku tónlistarverðlaunanna í flokknum „lagahöfundur ársins í jazz og blústónlist“.

Á efnisskránni munu lög af seinustu plötu þeirra félaga verða nokkuð áberandi, en einnig hljóma lög af fyrri plötum sem og nýtt efni sem ekki hefur heyrst á tónleikum hjá þeim áður.

Tónleikarnir hefjast kl.20.00 og er miðasala við innganginn, verð aðgöngumiða er 3.000 krónur og posi er á staðnum.