sudurnes.net
Dæmdur í 30 daga fangelsi fyrir að hrækja á lögregluþjón - Local Sudurnes
Karlmaður var í lok febrúar dæmdur fyrir brot gegn valdstjórninni, með því að hafa aðfaranótt sunnudagsins 29. apríl 2018 hrækt inn um opinn glugga lögreglubifreiðar í Reykjanesbæ og í andlit lögreglumanns sem þar var við skyldustörf. Maðurinn játaði sakargiftir í málinu skýlaust og horfir það honum til málsbóta. Maðurinn var dæmdur í fangelsi í 30 daga, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa að telja, haldi ákærði almennt skilorð. Þá var manninum gert að greiða lögmannskostnað að upphæð 126.480 krónur. Meira frá SuðurnesjumStrætóakstur í Reykjanesbæ verður boðinn út afturÞriðjungur af launakostnaði Kadeco fer í þóknanir og hlunnindi til stjórnendaSafna fyrir uppeldisbótum: “Skora á alla sanna Njarðvíkinga að leggja sitt á vogaskálarnar”Fimm teknir fyrir of hraðan akstur – Einn á rúmlega tvöföldum hámarkshraðaSala varnarliðseigna – “Hefði haft bein áhrif á fasteignamarkaðinn að bíða eftir betra verði”Lögreglan á Suðurnesjum hleraði einna mest á síðasta áriSuðurnesjaliðin halda áfram viðskiptum við HensonSamúel Kári meiddist á æfingu – Verður líklega frá keppni út áriðFjölskylduskemmtun Björgunarsveitarinnar Suðurnes í kvöldLoka Pósthúsinu – Svona verður þetta!