Nýjast á Local Suðurnes

Czech Airlines flýgur frá Keflavík til Prag

Flugfélagið Czech Airlines hefur ákveðið að fljúga á milli Keflavíkurflugvallar og Prag í Tékklandi sumarið 2017. Flogið verður tvisvar í viku, á þriðjudögum og fimmtudögum frá 1. júní 2017 til 26. september 2017 á Airbus A319 þotum.

Prag er af mörgum talin ein fallegasta borg Evrópu. Í borginni eru glæsilegar byggingar, listaverk og sögulegar minjar, þröngar götur og fjöldi kaffihúsa og veitingastaða. Menningarlífið er fjölbreytt og áhugaverðir viðburðir alla daga.

Hlynur Sigurðsson, framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Keflavíkurflugvallar: “Það er mjög ánægjulegt að bæta Prag inn á vaxandi lista áfangastaða í beinu áætlunarflugi frá Keflavíkurflugvelli og Czech Airlines á listann yfir flugfélög sem fljúga til og frá flugvellinum. Prag er mjög falleg borg sem fjöldi Íslendinga hefur fallið fyrir í gegnum tíðina og við vonum auðvitað að sem flestir nýti sér tækifærið og heimsæki borgina næsta sumar.”