Nýjast á Local Suðurnes

Byrjað að bólusetja á Suðurnesjum

Það var sannarlega fagnað á HSS í dag þar sem bólusetning fyrir COVID-19 hófst. Efnin komu um hádegisbil, en hjúkrunarfræðingar tóku svo til við að blanda þau eftir kúnstarinnar reglum.

Skammtarnir sem fengust í þetta fyrsta skipti munu nægja til að bólusetja framlínufólk HSS og vistfólk á Nesvöllum, Hlévangi og Víðihlíð í dag.

Kristín Sigurmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur á Slysa- og bráðamóttöku, varð þess heiðurs aðnjótandi að þiggja fyrsta skammtinn.

Næsta sending bóluefnis ætti að berast til landsins um miðjan janúar og verður þá haldið áfram að bólusetja fólk í áhættuhópum.