sudurnes.net
Byggja 11 íbúða leiguhúsnæði - Local Sudurnes
Í dag var tekin skóflustunga að 11 íbúða leiguhúsnæði sem Bjarg íbúðafélag mun reisa við Bárusker í Sandgerði. Með skóflustungu í dag eru framkvæmdir hafnar, verktaki við uppbyggingu hússins er H.H. Smíði ehf. í Grindavík og eru áætluð verklok haustið 2024. Skóflustungan í dag var í sex hlutum. Trausti Björgvinsson formaður Starfsmannafélags Suðurnesja, Björn Traustason framkvæmdastjóri Bjargs, Guðrún B Sigurðardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs Suðurnesjabæjar, Þórsteina Sigurjónsdóttir fulltrúi Verkalýðs-og sjómannafélags Sandgerðis, Magnús Stefánsson bæjarstjóri Suðurnesjabæjar og Kristján Þórður Snæbjarnarson stjórnarmaður í Bjargi og varaforseti ASÍ sáu sameiginlega að taka skóflustunguna og hefja þar með framkvæmdir við verkið. Það er ánægjulegt að Bjarg íbúðafélag ráðist í þessa framkvæmd og þar með fjölgi leiguíbúðum fyrir tekjulága einstaklinga og fjölskyldur í Suðurnesjabæ. Mikil eftirspurn hefur verið eftir leiguhúsnæði í Suðurnesjabæ og er því kærkomið að Bjarg íbúðafélag muni með þessu auka framboð á leiguhúsnæði á hagstæðu verði. Verkefnið er fjármagnað af ríkinu og Suðurnesjabæ með stofnframlögum, ásamt því að hagstæð lán munu fjármagna verkefnið að hluta. Meira frá SuðurnesjumTillögur vegna gömlu sundhallarinnar ræddar í kvöldHandtekinn eftir árekstur á Reykjanesbraut – Ók á bifreið sem endaði langt utanvegarLoka á afgreiðslu skólamáltíða vegna ógreiddra reikningaNjarðvíkingar ósáttir við lengd leikbannsOpna inn á gossvæðiðVilltust í svartaþoku við FagradalsfjallÞriðja deildin: [...]