Býður þjófum háar fjárhæðir – “Virkilega leiðinlegt að höfnin sé ekki vöktuð”
Björn Þorri Viktorsson, einn eigenda Útgerðarfélagsins Upphafs ehf., sem gerir út bátinn Borgar Sig AK býðst til að greiða þeim sem tóku sex handfærarúllur ófrjálsri hendi úr bát hans í Njarðvíkurhöfn um helgina hálfa milljón króna án skilyrða. Verði það ekki til þess að ljúka málinu býður Björn Þorri þeim sem geta veitt upplýsingar sem verða til þess að þjófarnir finnist sömu upphæð.
Þetta kemur fram í viðtali við Þorra á mbl.is. Þar segir Björn Þorri öryggismál við höfnina vera slæm, en engin vöktun og engar myndavélar eru við höfnina.
Spurður hvort ekki séu myndavélar við höfnina segir hann að svo sé ekki. „Og það er nú kannski stóra málið. Maður reynist vera einn á báti þegar á reynir. Það er engin vöktun og það finnst okkur öllum virkilega leiðinlegt.“
Björn Þorri segir tjónið mikið, enda sé nývirði á ellefu vindum vel yfir sjö milljónir króna, fyrir utan virðisaukaskatt. „Mér skilst að hún kosti 660 þúsund krónur, vindan, í dag. Fyrir utan vask. Þannig að þetta eru engir smáaurar.“