Búist við varasömum akstursskilyrðum á Reykjanesbraut með kvöldinu
Útlit fyrir allt að 35 m/s í hliðarvindi á Reykjanesbraut frá um klukkan 18 í kvöld. Ausandi rigning verður á svæðinu og varasöm skilyrði. Frá þessu er greint á vef Vegagerðarinnar. Þá eru þeir sem hyggja á ferðalög varaðir við því að vindur undir Hafnarfjalli getur orðið allt að 45 m/s.
Veðurhorfur á landinu næsta sólarhringinn eru svohljóðandi:
Vaxandi suðaustanátt í dag, 18-25 m/s síðdegis, en heldur hægari N- og A-til á landinu. Þurrt og bjart veður norðan heiða, annars rigning með köflum. Hiti 7 til 16 stig, hlýjast á N-landi.
Suðaustan 10-18 og rigning á morgun, einkum SA-lands en áfram þurrt fyrir norðan. Hiti 6 til 13 stig.