sudurnes.net
Búist við jákvæðri rekstrarniðurstaðu í Reykjanesbæ - Hér eru helstu tölur! - Local Sudurnes
Fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar fyrir árið 2024 var samþykkt á dögunum, en samkvæmt henni er gert ráð fyrir jákvæðri rekstrarniðurstöðu á A hluta bæjarsjóðs að fjárhæð 173 m.kr. og jákvæðrar rekstrarniðurstöðu að fjárhæð 1.244 m.kr. í samstæðu A og B hluta. Sex vinnufundir voru haldnir í tengslum við vinnslu áætlunarinnar, sem öllum kjörnum aðal- og varafulltrúum var boðið þátttöku í. Fjárhagsáætluninin var á endanum samþykkt með öllum greiddum atkvæðum utan þess að fulltrúi Umbótar sat hjá við atkvæðagreiðsluna. Helstu niðurstöður fjárhagsáætlunar ársins 2024 Tekjur samstæðu (A+B hluti) verða 37,2 milljarða.kr.Tekjur bæjarsjóðs (A hluti) verða 25,2 milljarðar.kr.Gjöld samstæðu (A+B hluti) verða 29,5 milljarða.kr.Gjöld bæjarsjóðs (A hluti) verða 22,5 milljarða.kr.Framlegð samstæðu (A+B hluti) verður 7,7 milljarða.kr. eða 20,67%Framlegð bæjarsjóðs (A hluti) verður 2,7 milljarða.kr. eða 10,67%Afskriftir samstæðu (A+B hluti) verða 2,1 milljarða.kr.Afskriftir bæjarsjóðs (A hluti) verða 756kr.Rekstrarniðurstaða samstæðu (A+B hluti) árið 2024 er jákvæð um 244 m.kr.Rekstrarniðurstaða bæjarsjóðs (A hluti) árið 2024 er jákvæð um 173kr.Eignir samstæðu í lok árs 2024 verða 88,7 milljarða.kr.Eignir bæjarsjóðs í lok árs 2024 verða 47,1 milljarða.kr.Skuldir og skuldbindingar samstæðu í lok árs 2024 verða 53,1 milljarða.kr.Skuldir og skuldbindingar bæjarsjóðs í lok árs 2024 verða 31,3 milljarða.kr.Veltufé frá rekstri samstæðu árið 2024 verður 6,2 milljarða.kr.Veltufé frá rekstri bæjarsjóðs árið [...]