sudurnes.net
Búist við jákvæðri niðurstöðu í Suðurnesjabæ - Local Sudurnes
Fjárhagsáætlun Suðurnesjabæjar fyrir árin 2024-2027 var samþykkt samhljóða í bæjarstjórn á fundi hennar þann 13. desember 2023. Fjárhagsáætlunin nær yfir rekstraráætlun, sjóðstreymi og áætlaðan efnahagsreikning fyrir Suðurnesjabæ, stofnanir hans og hlutdeildarfélög. Forsendur fjárhgsáætlunar byggja meðal annars á þjóðhagsspá Hagstofu Íslands varðandi verðlags-og launaþróun næstu ára. Áætlunin byggir einnig á áætlun um útsvarstekjur og framlög frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Áætlun ársins 2024 gerir ráð fyrir að heildartekjur samstæðu A og B hluta verði 6.779 mkr. Heildartekjur A hluta bæjarsjóðs eru áætlaðar 6.440 mkr., segir í tilkynningu. Rekstrargjöld án fjármagnsliða eru áætluð 6.031 mkr. hjá samstæðu A og B hluta, en hjá A hluta bæjarsjóðs 6.225 mkr. Afskriftir í samstæðu A og B hluta eru áætlaðar 283 mkr. og fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur nema 334 mkr. Rekstrarniðurstaða samstæðu A og B hluta er áætluð jákvæð 128 mkr. og hjá A hluta bæjarsjóðs jákvæð 129 mkr. Eignir Suðurnesjabæjar í árslok 2024 eru áætlaðar 10.618 mkr. þar af eignir A hluta bæjarsjóðs 1.921 mkr. Skuldir og skuldbindingar samstæðu A og B hluta eru áætlaðar 6.331 mkr. í árslok 2024, þar af 4.425 mkr. hjá A hluta bæjarsjóðs. Eigið fé samstæðunnar er áætlað 4.287 mkr. í árslok 2024. Fjárfestingaáætlun hljóðar upp á 968 mkr., og er gert [...]