Búið að opna Reykjanesbraut og Grindavíkurveg
Búið er að opna Reykjanesbraut fyrir umferð, en veginum var lokað um klukkan 21 í kvöld vegna veðurs.
Á vef Vegagerðarinnar kemur fram að skafrenningur sé á brautinni auk þess hálku.
Þá hefur verið opnað fyrir umferð um Grindavíkurveg og eru aðstæður þar þær sömu og á Reykjanesbraut, skafrenningur og hálka.